Hvenær fæ ég bækurnar sem ég pantaði?

Við sendum allar pantanir næsta virka dag. Pósturinn gefur sér 1-3 virka daga til að koma sendingum til skila, hvort heldur sem er á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni.

Þarf ég að sækja pakkann minn á pósthús?

Allir pakkar eru sendir heim að dyrum. Ef viðskiptavinur er ekki heima þegar pakkinn kemur þarf þó að sækja hann á pósthús.

Getið þið útvegað bækur sem eru ekki á vefnum hjá ykkur?

Við getum útvegað mjög marga titla sem ekki eru enn á vefnum hjá okkur. Ef þú finnur ekkert við leit, fylltu endilega út formið sem birtist og við reynum að útvega bókina fljótt.

Kaupið þið bækur?

Já, við gerum tilboð í bókasöfn, stór sem smá. Ef þú ert með lista yfir bækurnar getur þú sent okkur hann á innkaup@gvendur.is. Ef enginn listi er til staðar getum við komið á staðinn og gert tilboð.

Get ég sótt bækur til ykkar?

Því miður býður húsnæðið ekki upp á aðstöðu til að leyfa viðskiptavinum að sækja bækur til okkar.

Ég hef áhuga á að kaupa dýrar bækur hjá ykkur en vil fá að skoða fyrst. Er það mögulegt?

Þegar um er að ræða dýrari bækur (~20 þúsund og yfir) skiljum við að viðskiptavinir vilji skoða og handleika bækurnar áður en þeir taka ákvörðun um kaup. Hafðu samband við okkur á gvendur@gvendur.is og við finnum tíma fyrir sýningu.